Skip to content
Kjúklingabúið VorKjúklingabúið Vor
Kjúklingabúið Vor
Kjúklingabúið Vor ehf. var stofnað árið 1993 og er rekið af hjónunum Ingimundi Bergmann og Þórunni Kristjánsdóttur.
  • Heim
  • Um okkur
    • Staðsetning
    • Starfsemin
    • Umhverfisstefna
  • Matreiðsla
  • Uppskriftir
    • Kjúklingaréttir
    • Meðlæti
  • Fróðleikur
  • Hafa samband
  • Heim
  • Um okkur
    • Staðsetning
    • Starfsemin
    • Umhverfisstefna
  • Matreiðsla
  • Uppskriftir
    • Kjúklingaréttir
    • Meðlæti
  • Fróðleikur
  • Hafa samband

BBQ vængir

Kjúklingavængir eru tilvaldir sem smáréttur á veisluborð eða einfaldlega sem full máltíð. Til eru þeir sem geta ekki hugsað sér Eurovision án þeirra! Hægt er að krydda þá á ótal vegu, fara einfalda leið og kaupa tilbúna kryddblöndu eða grillsósu í búð eða e.t.v. setja sósuna í sparibúning.

 

Grillsósa 1

 

1-2 dl BBQ sósa (bandarísk)

1-2 dl plómuhlaup

 

Plómuhlaupið þarf að velgja til að geta blandað því saman við BBQ sósuna, þá eru vængirnir baðaðir í sósunni og loks raðað á ofnplötu. Þeir eru síðan annað hvort grillaðir eða steiktir í ofni í við 225 °C (eða 200 °C og blástur). Þegar um 10 mínútur eru eftir af tímanum er bætt á sósuna á vængjunum. Plómuhlaupið var reyndar bara notað fyrir rælni, smá rabbabarasulta gæfi eflaust líka góðan keim en samkvæmt 5 ára gömlum matgæðingi voru þessi vængir „rosalega góðir“.

Gott er að bera t.a.m. fram grænmetissnakk og kalda gráðostasósu með vængjum sem þessum.

 

Grillsósa 2

 

2 dl amerísk BBQ sósa

nokkrar plómur (Opal)

skvetta af matreiðsluhvítvíni

skvetta af rauðvínsediki

svolítið af hunangi

væn skvetta af tabasco

2 msk Worchestershire sósa

svolítið af fersku engiferi

 

Plómurnar helmingaðar og soðnar í hvítvíninu þar til hægt er að flysja þær. Að því loknu er öðru bætt út í og sósan maukuð með töfrasprota ef þess þarf en annars smökkuð til.

Meira efni

Mangó chutney kjúklingur
5. apríl, 2017
Kjúklingur í rauðvínssósu
5. apríl, 2017
Kjúklingur í rauðu pestói
5. apríl, 2017
Kjúklingur í grænu pestó
5. apríl, 2017
Kjúklingur í BBQ-rjómasósu
5. apríl, 2017
Kjúklingur á kolli
5. apríl, 2017
  • Kjúklingaréttir
    • Appelsínukjúklingur
    • BBQ vængir
    • Kjúklingasamloka
    • Kjúklingavefjur í ofni
    • Kjúklingur á kolli
    • Kjúklingur í BBQ-rjómasósu
    • Kjúklingur í grænu pestó
    • Kjúklingur í rauðu pestói
    • Kjúklingur í rauðvínssósu
    • Mangó chutney kjúklingur
  • Meðlæti
    • Eiðssalat
    • Gráðostasósa
    • Guacamole
    • Hið fullkomna pizzadeig
    • Hrásalat (coleslaw)
    • Naan brauð
    • Ofnbakað grænmeti
  • Facebook
  • Mail

Kjúklingabúið Vor ehf. | 441093-2929 | Vatnsenda, 803 Selfossi | vor@vor.is | 486 1810

Við notum vafrakökur (e. cookies) til að gera upplifun þína af síðunni sem besta, muna innskráningar, stillingar og fleira.